Vefsíðan

Þessi vefsíða hefur að geyma upplýsingar og myndir um Herder Andersson, lífshlaup hans og listiðju, og var opnuð í tilefni af 90 ára afmæli Herders 23. nóvember 2023. Herder er margt til lista lagt eins og sjá má en um lífshlaup hans og listiðju má lesa nánar hér á vefsíðunni. Ítarlegri frásögn hans má lesa í bókinni Messuhöklar og altarisklæði sem kom út í tilefni af 90 ára afmælinu. Bókin er kynnt nánar hér á síðunni en hana má kaupa í Kirkjuhúsinu, Bústaðakirkju við Bústaðaveg.
Vefsíðan mun stækka á næstu mánuðum og verður myndum og ítarlegri upplýsingum bætt við. Undirritaður ber ábyrgð á vefsíðunni og er hún unnin í samráði við Herder. Ef þið hafið fyrirspurnir eða athugasemdir má koma þeim til skila með því að smella á ‚Hafðu samband‘ og fylla út formið sem þá birtist.
ASTRA ehf, Reykjavík, hefur unnið að uppsetningu vefsíðunnar ásamt undirrituðum.

Jón Helgi Þórarinsson